Fotbolti.net
29.06.26 - 21:25
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markið: Óvænt staða í Boston

Julio Enciso fagnar marki sínu

Julio Enciso fagnar marki sínu

Canon

Mynd: EPA

Paragvæ leiðir óvænt gegn Þýskalandi, 1-0, í hálfleik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Boston í Bandaríkjunum.
Þjóðverjar voru miklu meira með boltann í fyrri hálfleiknum án þess þó að skapa sér mikið.

Paragvæar virtust nokkuð sáttir við það en náðu svo að stuða Þjóðverja undir lok hálfleiksins. Miguel Almiron lék sér á hægri vængnum og átti frábæra sendingu á Matias Galarza, sem kom á hlaupinu.

Hann sendi fasta fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Julio Enciso var mættur og stangaði boltann í netið.

Agalegur varnarleikur hjá Þjóðverjum, sem hafa verk að vinna í síðari hálfleiknum.

Sjáðu markið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.