29.07.17 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fylkir fær þriðja erlenda leikmanninn í vikunni (Staðfest)

Fylkir heldur áfram að styrkja sig.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fylkir heldur áfram að styrkja sig.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fylkir hefur fengið liðsstyrk fyrir lokaátökin í Pepsi-deild kvenna en Kaitlyn Johnson er komin til félagsins.
Kaitlyn er framherji sem kemur frá Bandaríkjunum.
Hún er þriðji erlendi leikmaðurinn sem kemur til Fylkis í þessari viku, hvorki meira né minna.
Kaitlyn er framherji sem kemur frá Bandaríkjunum.
Hún er þriðji erlendi leikmaðurinn sem kemur til Fylkis í þessari viku, hvorki meira né minna.
Hin hollenska Maruschka Waldus kom á miðvikudaginn, en deginum áður hafði liðið samið við Brooke Hendrix. Waldus og Hendrix eru varnarsinnaðari leikmenn heldur en Johnson.
Fylkir er í fallsæti þegar sjö umferðir eru eftir í Pepsi-deildinni, en Hermann Hreiðarsson tók við þjálfun liðsins af Jóni Aðalsteini Kristjánssyni á dögunum.
Fylkir er í fallsæti þegar sjö umferðir eru eftir í Pepsi-deildinni, en Hermann Hreiðarsson tók við þjálfun liðsins af Jóni Aðalsteini Kristjánssyni á dögunum.
