Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 29. júlí 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrsta æfing Glódísar hjá þýska stórveldinu eftirminnileg
Glódís Perla er komin til Bayern.
Glódís Perla er komin til Bayern.
Mynd: FC Bayern
Landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir hefur hafið sitt undirbúningstímabil með Bayern München eftir stutt sumarfrí.

Þær eru núna tvær íslenskar landsliðskonur saman hjá þýska stórveldinu; Glódís og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.

Karólína birti mynd á Instagram eftir fyrstu æfingu Glódísar og skrifar að æfingin hafi verið eftirminnileg, í rigningunni.

Glódís hefur síðustu ár sannað sig sem einn besti miðvörður sænsku úrvalsdeildarinnar. Hún var stórkostleg hjá toppliðinu í Svíþjóð, Rosengård, fyrri hluta þessa tímabils og var hún fengið til Bayern fyrr í þessum mánuði.

Það verður gaman að fylgjast með Íslendingunum tveimur á komandi tímabili. Bayern vann þýsku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð og komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner