Fotbolti.net
29.07.22 - 16:42
Ívan Guðjón Baldursson

Ronaldo ekki með gegn Atletico Madrid

Ronaldo ekki með gegn Atletico Madrid
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo er ekki í leikmannahópi Manchester United sem spilar æfingaleik við Atletico Madrid í Osló á morgun. 

Ronaldo er sagður vilja skipta um félag en Rauðu djöflarnir vilja halda honum þar sem Erik ten Hag telur sig hafa not fyrir þennan goðsagnakennda framherja.

Ronaldo vill spila í Meistaradeild Evrópu til að tryggja markametið sitt og koma í veg fyrir að Lionel Messi geti jafnað það. Hann hefur verið að líta í kringum sig og virðist vilja fara aftur til uppeldisfélagsins Sporting CP.

Ronaldo er búinn að missa af öllu undirbúningstímabili Man Utd fyrir komandi leiktíð og verður áhugavert að fylgjast með þróun mála. 

Man Utd mætir Brighton í fyrstu umferð úrvalsdeildartímabilsins eftir rétt rúma viku, sunnudaginn 7. ágúst.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.