29.08.12 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Henri Lansbury til Nottingham Forest (Staðfest)

Henri Lansbury.

Mynd: Getty Images

Henri Lansbury.

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur keypt miðjumanninn Henri Lansbury frá Arsenal og er kaupverðið talið nema um einni milljón punda.
Hinn 21 árs gaml Lansbury var meirihluta síðasta tímabils á láni hjá West Ham í, en hann hefur áður verið lánaður til Scunthorpe, Watford og Norwich.
Lansbury gekk í raðir Arsenal þegar hann var einungis 8 ára gamall og lék hann sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið árið 2007.
Hann náði þó aldrei að festa sig í sessi í liðinu hjá Arsene Wenger og náði einungis þremur leikjum í úrvalsdeildinni, fimm í deildarbikarnum og skoraði eitt mark.
Lansbury lék 22 leiki fyrir West Ham í Championship-deildinni í fyrra og var hann mikilvægur í liðinu sem tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni að nýju.