29.08.12 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Jimmy Bullard genginn í raðir MK Dons (Staðfest)

Jimmy Bullard.

Mynd: Getty Images

Jimmy Bullard.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Jimmy Bullard hefur skrifað undir hjá MK Dons og mun leika með liðinu til áramóta.
Bullard lék lengst af með Wigan og vakti mikla athygli í ensku úrvalsdeildinni fyrir skemmtilegt viðmót.
Hann hefur einnig leikið með Peterborough, Hull City og Ipswich.
MK Dons mun núna vonast til að Bullard, sem er orðinn 33 ára, hjálpi liðinu í að komast upp um deild og í Championship-deildina.
Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt myndband þar sem Bullard fer með aðalhlutverk, en sem fyrr segir höfðu margir gaman að honum þegar hann lék í úrvalsdeildinni.