29.08.12 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mayuka til Southampton (Staðfest)

Emmanuel Mayuka.

Mynd: Getty Images

Emmanuel Mayuka.

Mynd: Getty Images
Nýliðar Southampton hafa fengið til sín sóknarmanninn Emmanuel Mayuka frá svissneska félaginu Young Boys.
Mayuka er 21. árs gamall og kemur frá Sambíu en það hefur ekki verið greint opinberlega frá kaupverðinu á honum.

Mayuka skoraði 32 mörk á tveimur tímabilum í Sviss og var markahæstur í landsliði Sambíu sem vann Afríkukeppnina 2012.
,,Emmanuel er leiftursnöggur sóknarmaður sem stuðningsmennirnir munu elska,\" sagði Nigel Adkins, knattspyrnustjóri Southampton.
,,Hann er aðeins 21. árs gamall en er gríðarlega leikreyndur, sérstaklega með landsliði sínu.
,,Hann mun koma með nýja vídd í liðið og ég get ekki beðið eftir að fá að sjá hann spreyta sig í Southampton búning.\"
Mayuka er búinn að fá atvinnuleyfi og verður kynntur opinberlega sem leikmaður Southampton síðar í vikunni.