Fotbolti.net
29.08.12 - 15:21
Elvar Geir Magnússon

Moussa Dembele í Tottenham (Staðfest)

Moussa Dembele í Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur staðfest kaup á belgíska miðjumanninum Moussa Dembele frá Fulham. Kaupverðið er í kringum 15 milljónir punda.

Dembele er 25 ára en hann stóðst læknisskoðun hjá Spurs í morgun.
Hann hefur leikið 40 landsleiki fyrir Belgíu en gekk í raðir Fulham frá AZ Alkmaar 2010. Hann skoraði fimm mörk í 65 leikjum fyrir Fulham.

Miklar vonir eru bundnar við leikmanninn sem kemur með aukna samkeppni fyrir Gylfa Þór Sigursson á miðsvæðinu.

Dembele var upphaflega keyptur sem sóknarmaður þegar hann kom til Fulham en færðist fljótlega inn á miðsvæðið þar sem hann hefur blómstrað.
Moussa Dembele í Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Tottenham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.