29.08.12 - 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Joe Bennett kominn til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa er búið að kaupa Joe Bennett, vinstri bakvörð Middlesbrough, og skrifaði leikmaðurinn undir fjögurra ára samning.
Aston Villa greiðir fjórar milljónir punda fyrir leikmanninn sem er 22. ára gamall og á 85 leiki að baki fyrir Middlesbrough ásamt því að hafa spilað fyrir U19, U20 og U21 árs landslið Englendinga.

,,Joe er mjög góður leikmaður, ungur og hungraður í árangur,\" sagði Paul Lambert, knattspyrnustjóri Villa.
,,Það leikur ekki vafi á því að hann mun njóta sín í þessu umhverfi. Hann passar nákvæmlega í liðið sem við erum að reyna að byggja hérna og hann er akkurat sú tegund leikmanns sem við viljum í herbúðum okkar.
,,Hann er gríðarlega orkuríkur og er snöggur upp og niður kantinn. Þetta eru frábær kaup og ég er ánægður með að hann sé búinn að skrifa undir.\"