29.08.18 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Benjamin Henrichs til Mónakó (Staðfest)

Benjamin Henrichs er mættur til Mónakó

Mynd: Twitter

Benjamin Henrichs er mættur til Mónakó

Mynd: Twitter
AS Mónakó festi í gær kaup á þýska bakverðinum Benjamin Henrichs frá Bayer Leverkusen. Þetta kom fram í tilkynningu frá félögunum.
Henrichs er 21 árs gamall hægri bakvörður en hann er uppalinn hjá Leverkusen og hefur verið þar í fjórtán ár.
Hann gerði fimm ára samning við Mónakó en kaupverðið er 20 milljónir evra.
Henrichs lék 76 leiki fyrir Leverkusen og þá á hann þrjá leiki fyrir þýska landsliðið.
Það hefur verið nóg að gera hjá Mónakó í sumar en félagið seldi Thomas Lemar til Atlético Madrid og Fabinho til Liverpool en á móti keypti félagið Willem Guebbels, Aleksandr Golovin, Antonio Barreca, Jean-Eudes Aholou, Pelé, Ronael Pierre-Gabriel, Samuel Grandsir og Jonathan Panzo.