Fotbolti.net
29.08.18 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Mariano Diaz til Real Madrid (Staðfest)

Mariano Diaz til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid var rétt í þessu að staðfesta kaupin á Mariano Diaz, 25 ára sóknarmanni Lyon.
Real seldi Diaz til Lyon fyrir 8 milljónir evra í fyrra og skoraði hann 18 mörk í 34 deildarleikjum fyrir franska félagið á síðasta tímabili.

Sevilla hafði komist að samkomulagi við Lyon um kaup á leikmanninum í sumar en Real átti forkaupsréttinn og stal honum á síðustu stundu.

Diaz vakti athygli á sér fyrir mikla markaskorun með B- og C-liði Real Madrid. Hann hefur gert 5 mörk fyrir aðalliðið í 14 keppnisleikjum.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en er talið vera í kringum 35 milljónir evra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.