29.08.18 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Rúnar Alex fær liðsfélaga frá Los Angeles (Staðfest)

Laurent Ciman í leik með Los Angeles FC

Mynd: Getty Images

Laurent Ciman í leik með Los Angeles FC

Mynd: Getty Images
Franska félagið Dijon hefur samið við belgíska varnarmanninn Laurent Ciman frá Los Angeles FC í MLS-deildinni.
Ciman er 33 ára gamall miðvörður en hann á þann heiður að hafa verið fyrsti fyrirliði Los Angeles auk þess sem hann skoraði fyrsta mark liðsins á heimavelli þeirra.
Hann fór frá Montreal Impact til Los Angeles fyrir síðasta tímabil en það var fyrsta tímabil Los Angeles í MLS-deildinni.
Ciman lék fyrir Charleroi, Kortrijk, Club Brugge og Standard Liege í Belgíu en nú snýr hann aftur til Evrópu og mun leika fyrir Djon í frönsku deildinni.
Rúnar Alex Rúnarsson gekk til liðs við Dijon í sumar frá Nordsjælland og hefur byrjað tímabilið af krafti. Liðið er í öðru sæti með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og aðeins fengið á sig eitt mark.