29.09.12 - 22:24
Hafliði Breiðfjörð
Anna Garðarsdóttir í Selfoss (Staðfest)

Anna og Gunnar Borgþórsson nýráðinn þjálfari Selfoss.

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Anna Garðarsdóttir er gengin til liðs við lið Selfoss frá KR en þetta var staðfest á vefnum Sunnlenska.is núna í kvöld.
Anna sem er 24 ára gömul skoraði sjö mörk í 14 deildarleikjum með KR í Pepsi-deild kvenna í sumar en ákvað að söðla um eftir að liðið féll úr deildinni.
Hún kom til KR fyrir síðustu leiktíð frá Aftureldingu en hún á að baki 85 leiki í meistaraflokki og hefur skorað í þeim 33 mörk.
Hún er uppalin hjá Víkingi í Reykjavík og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki í 1. deildinni með HK/Víkingi. Hún skipti síðan yfir í Val árið 2007 og lék þar þangað til í fyrrasumar en tímabilin 2008 og 2011 var hún lánuð til Aftureldingar í Pepsi-deildinni.
Fyrir nýliðið keppnistímabil skipti hún yfir í KR og lék 14 leiki með Vesturbæingum í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði sjö mörk.
,,Mér líst mjög vel á að koma á Selfoss. Það er greinilega mikill uppgangur og metnaður hjá félaginu. Ég þekki Gunna frá því að hann þjálfaði mig hjá Val og hann er frábær og metnaðarfullur þjálfari þannig að ég er bara mjög spennt fyrir þessu,\" sagði Anna í samtali við sunnlenska.is eftir undirritun samningsins.

Heimild: Sunnlenska.is