Fotbolti.net
29.09.18 - 15:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pedro Hipolito sagður í viðræðum um að taka við ÍBV

Pedro Hipolito sagður í viðræðum um að taka við ÍBV
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Um síðustu helgi var sagt frá því að Pedro Hipolito <a href="https://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=262657" target="_blank">myndi ekki halda áfram með Fram</a>. Vefsíðan <a href="http://www.dv.is/433/2018/09/29/tekur-pedro-hipolito-vid-ibv/" target="_blank">433.is</a> segir frá því í dag að Portúgalinn sé í viðræðum um að taka við ÍBV af Kristjáni Guðmundssyni.
Kristján Guðmundsson greindi frá því í vikunni að hann myndi ekki halda áfram með ÍBV eftir að hafa náð frábærum árangri með Vestmannaeyjaliðið.

433 segir að Hipolito sé í stúkunni á leik ÍBV og Grindavíkur að fylgjast með leiknum þar.

Fleiri hafa verið orðaðir við starfið hjá ÍBV, þar á meðal Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Ian Jeffs.

Pedro kom óþekktur inn í íslenska knattspyrnu um mitt sumar í fyrra. Hann er nýorðinn fertugur en hann stýrði liði Atletico CP í B-deildinni í heimalandi sínu áður en hann kom til Fram. Hann lék 52 með unglingalandsliðum Portúgal á sínum tíma. Rui Faria, þáverandi aðstoðarstjóri Manchester United, gaf Hipolito meðmæli áður en hann tók við Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.