þri 29. september 2020 07:30
Aksentije Milisic
Tottenham hefur áhuga á Rudiger
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur áhuga á að kaupa Antonio Rudiger frá Chelsea. Þessu greinir Sky Sports frá.

Talið er að Rudiger vilji fara frá Chelsea en hann gæti farið á láni. Hann hefur enn ekki fengið að spila á þessari leiktíð og virðist hann ekki vera í myndinni hjá Frank Lampard, stjóra Chelsea.

Hinn 27 ára gamli Rudiger gekk í raðir Chelsea frá Roma árið 2017 en hann hefur spilað 80 leiki fyrir félagið og skorað 5 mörk.

Þá á Rudiger 32 landsleiki að baki fyrir Þýskaland en hann er uppalinn hjá Stuttgart.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner