Stjörnulið vikunnar í Fantasy - Mikael Nikulásson
Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

Mikael Nikulásson er einn fremsti knattspyrnuspekingur þjóðarinnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svona leit liðið hans Mæk út í 8. umferð og fékk heil 75 stig sem var ansi hátt skor þessa umferðina

Mynd: Albert Guðmundsson

Gabriel gerði vel fyrir Mækarann og sótti 17 stig með marki, hreinu blaði og stigum fyrir varnarframlag

Mynd: EPA

Mikael Nikulásson er einn fremsti knattspyrnuspekingur þjóðarinnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Strákarnir taka fyrir eitt stjörnulið í hverjum þætti og í þessari viku var það Mikael Nikulásson knattspyrnuspekingur.
Markmaður
Kinsky (9)
Varnarmenn
Muharemovic (9), Thomas (1), Gabriel (17), Calafiori (1)
Miðjumenn
Rogers (1), Tavernier (10), Cherki (0), Gomez (2)
Sóknarmenn
Haaland C (16), Isak (9)
Haaland er vinsæll í Fantasy samfélaginu og margir sem treystu honum fyrir fyrirliðabandinu þessa vikuna, það gerði Mækarinn líka og fékk að launum 8 stigin hans tvöfölduð. Hann var óheppinn að Thomas fór útaf á 59. mínútu sem þýðir að hann fékk ekki stig fyrir að halda hreinu þar sem leikmaður þarf að spila 60 mínútur svo það telji. 5 stig í vaskinn þar útaf nokkrum sekúndum. Joao Pedro var meiddur og spilaði ekki en Mæk fékk ekki mikla hjálp af bekknum en Gomez kom inn með sín 2 stig.
Mikael situr í 163. þúsundasta sæti overall af yfir 11m þátttakendum í Fantasy og er efstur í Hjamma.net einkadeildinni þar sem hann er að skáka mönnum á borð við Hjálmari sjálfum, Sindra Jens, Mate Dalmay o.fl.
Við óskum Mækaranum góðs gengis í ár og vonum að honum takist að enda í topp 100 þúsund í heiminum í fyrsta sinn síðan 2018 þegar hann endaði í sæti 15 þúsund.
Við minnum á að allir þættir 38 umferða eru aðgengilegir á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net, Spotify og á YouTube.
Frestur til að gera breytingar fyrir 9. umferð er kl 11:00 á laugardag. Umferðin hefst á leik Chelsea og Manchester United kl 12:30 sama dag.
Liðið hans Mæk er tekið fyrir á mínútu 14:55 í þættinum sem má sjá hér fyrir neðan.

Svona leit liðið hans Mæk út í 8. umferð og fékk heil 75 stig sem var ansi hátt skor þessa umferðina

Mynd: Albert Guðmundsson

Gabriel gerði vel fyrir Mækarann og sótti 17 stig með marki, hreinu blaði og stigum fyrir varnarframlag

Mynd: EPA
