Fotbolti.net
29.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Útskýrir af hverju hann notaði ekki Estevao - „Þarft að vera tilbúinn í það“

Estevao hefur fengið fá tækifæri hjá Alonso

Estevao hefur fengið fá tækifæri hjá Alonso

Canon

Mynd: EPA

Brasilíski vængmaðurinn Estevao er ekki ánægður með spilatímann sem hann er að fá hjá Chelsea.
Enski deildabikarinn: Liverpool í átta liða úrslit eftir dramatískan sigur á Chelsea
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Liverpool í átta liða úrslit eftir dramatískan sigur á Chelsea

Estevao kom til Chelsea á síðasta ári og var þá talinn einn efnilegasti fótboltamaður Suður-Ameríku.

Hann hefur hins vegar lítið fengið að spila undir stjórn Xabi Alonso á þessu tímabili. Hann hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í tveimur leikjum í enska deildabikarnum og fengið um 40 mínútur í ensku úrvalsdeildinni.

Í gær sat hann allan tímann á bekknum gegn Liverpool í deildabikarnum og var Alonso spurður eftir leikinn hvers vegna hann hefði ekki nýtt krafta hans.

„Við vitum að það er gríðarleg ákefð í ensku úrvalsdeildinni og í leikjum á Englandi almennt. Þú þarft að vera tilbúinn fyrir það. Este er á sínu öðru tímabili og hefur einnig glímt við meiðsli, en þetta ástand mun ekki vara mikið lengur.“

„Ég skil vel stöðuna sem hann er í og auðvitað gæti hann verið ánægðari. Hann vill spila og vera hluti af liðinu, en allir fá sín tækifæri. Ég er viss um að hans tími mun koma og það er á minni ábyrgð að sjá til þess. Við vorum hins vegar að einhverju leyti þvingaðir til að gera ákveðnar skiptingar undir lokin,“
sagði Alonso um Estevao.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.