Fotbolti.net
28.10.26 - 23:13
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Ítalía: Mikael og félagar unnu Juventus - De Bruyne og Höjlund skoruðu fyrir Napoli

Genoa vann Juventus

Genoa vann Juventus

Canon

Mynd: EPA

Mikael Egill Ellertsson og félagar hans í Genoa unnu frækinn 2-0 sigur á Juventus í 9. umferð í Seríu A á Ítalíu í kvöld.
Framarinn skoraði sigurmark Genoa í síðustu umferð með stórkostlegu skoti og hélt sæti sínu í byrjunarliðinu gegn Juventus.

Kingsley Ehizibue og Tommaso Baldanzi komu Genoa í 2-0 á fyrsta hálftímanum. Ehizibue opnaði markareikninginn á 12. mínútu þegar sending frá vinstri fór í gegnum allan vítateiginn og barst til hans á fjærstönginni.

Baldanzi tvöfaldaði síðan forystuna á 28. mínútu. Vitinha dansaði í gegnum vörn Juventus áður en boltinn hrökk frá honum til Baldanzi sem nýtti tækifærið og skoraði.

Sigur Genoa var verðskuldaður þótt Juventus hafi fengið nokkur góð færi í sömu sókninni í uppbótartíma.

Þetta var fyrsti sigur Genoa á Juventus í meira en fjögur ár og honum var fagnað innilega. Genoa er komið upp í 13. sæti með tíu stig en Juventus situr í áttunda sæti með 14 stig.

Kevin de Bruyne og Rasmus Höjlund voru þá báðir á skotskónum þegar Napoli vann sannfærandi 4-1 sigur á Monza. Napoli situr í sjöunda sæti með 14 stig.

Genoa 2 - 0 Juventus
1-0 Kingsley Ehizibue ('12 )
2-0 Tommaso Baldanzi ('28 )

Monza 1 - 4 Napoli
0-1 Rasmus Hojlund ('10 )
1-1 Gustavo Varela ('43 )
1-2 Matteo Politano ('48 )
1-3 Rafa Marin ('62 )
1-4 Kevin De Bruyne ('67 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio9+1525
2Inter9+1525
3Roma9+1521
4Como9+920
5Milan9+718
6Napoli9+614
7Frosinone8+414
8Juventus9+114
9Torino9013
10Cagliari9-513
11Bologna9011
12Atalanta8-110
13Genoa9-510
14Lecce8-59
15Sassuolo9-88
16Monza9-67
17Udinese9-95
18Parma9-105
19Fiorentina8-104
20Venezia9-133
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.