Fotbolti.net
29.10.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Bruno snýr aftur í byrjunarliðið

Bruno snýr aftur í byrjunarliðið
Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, mun snúa aftur í byrjunarliðið þegar liðið mætir Chelsea um helgina. Frá þessu greinir Telegraph.
Carrick og Bruno lægja öldurnar sín á milli
TENGT EFNI

Carrick og Bruno lægja öldurnar sín á milli

Fernandes var settur á bekkinn gegn Bournemouth og kom ekkert við sögu eftir að hafa gagnrýnt leikskipulag Michael Carrick í 4-1 tapinu gegn Como í Meistaradeildinni.

Portúgalinn hefur ekki verið líkur sjálfum sér á tímabilinu og fullyrti Carrick að ákvörðunin um að setja hann á bekkinn gegn Bournemouth hefði eingöngu verið tekin af fótboltalegum ástæðum. Þar sat einnig Lisandro Martínez, sem hafði gagnrýnt félagið aðeins viku áður.

Telegraph og fleiri miðlar greindu frá því í gær að Carrick og Fernandes hefðu sest niður og hreinsað andrúmsloftið sín á milli. Nú er búist við því að fyrirliðinn snúi aftur í byrjunarliðið gegn Chelsea um helgina.

Carrick hefur fengið meiri tíma til að rétta skútuna af, en United hefur ekki unnið í síðustu átta leikjum sínum í öllum keppnum og er nú komið niður í 16. sæti deildarinnar.

Óvíst er hversu mikinn tíma Carrick fær til viðbótar, en tap gegn Chelsea gæti orðið kornið sem fyllir mælinn hjá stjórninni. Julian Nagelsmann, Eddie Howe og Antonio Conte hafa allir verið orðaðir við stjórastöðuna á síðustu vikum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.