Fotbolti.net
28.10.26 - 19:42
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeild kvenna: Glódís og Bayern komu til baka gegn Real Madrid

Bayern kom til baka og náði í stig

Bayern kom til baka og náði í stig

Canon

Mynd: EPA

MeistaradeildKvennaboltinn
Þýskalandsmeistarar Bayern München komu til baka eftir að hafa lent tveimur mörkum undir og gerðu 2-2 jafntefli við Real Madrid í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki í kvöld.
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var að venju í vörn Bæjara sem lentu óvænt tveimur mörkum undir á rúmum tuttugu mínútum.

Spænska landsliðskonan Athenea kom Real Madrid yfir á 7. mínútu með laglegu marki eftir enn glæsilegri fyrirgjöf frá Lindu Caicedo. Lineth Beerensteyn bætti síðan öðru marki við með skalla eftir aukaspyrnu.

Edna Imade minnkaði muninn níu mínútum síðar með skalla eftir hornspyrnu og Bæjurum tókst svo að jafna metin snemma í síðari hálfleik með laglegu skoti.

Glódís lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Bayern sem fer upp í þriðja sæti með fimm stig, en Real Madrid situr í tíunda sæti með þrjú stig.

Chelsea vann 2-0 sigur á Roma í Lundúnum þar sem Ellie Carpenter og Kadeisha Buchanan skoruðu mörkin í síðari hálfleik. Chelsea er á toppnum með sjö stig.

Servette vann þá öruggan 5-1 sigur á Oud-Heverlee þar sem Paola Hernandez og Gloria Marinelli skoruðu báðar tvö mörk.

Bayern 2 - 2 Real Madrid
0-1 Athenea del Castillo ('7 )
0-2 Lineth Beerensteyn ('22 )
1-2 Edna Imade ('31 )
2-2 Momoko Tanikawa ('52 )

Chelsea 2 - 0 Roma
1-0 Ellie Carpenter ('51 )
2-0 Kadeisha Buchanan ('90 )

Servette Chenois 5 - 1 Oud-Heverlee
1-0 Paola Hernandez ('16 )
2-0 Gloria Marinelli ('38 )
3-0 Gloria Marinelli ('44 )
4-0 Paola Hernandez ('58 )
4-1 Jada Coninjenberg ('81 )
5-1 Joana Marchao ('83 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.