Fotbolti.net
28.10.26 - 19:28
Brynjar Ingi Erluson

Viðar Ari skoraði sigurmarkið og sló Frey og félaga úr bikarnum

Viðar Ari skoraði sigurmarkið gegn Frey og lærisveinum hans í Rosenborg

Viðar Ari skoraði sigurmarkið gegn Frey og lærisveinum hans í Rosenborg

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Viðar Ari Jónsson var hetja Ham/Kam þegar liðið vann 2-1 sigur á Rosenborg, sem Freyr Alexandersson stýrir, í 32-liða úrslitum norska bikarsins í kvöld.
Rosenborg hafði verið á mikilli siglingu undir stjórn Freys og ekki tapað leik síðan í lok ágúst.

Liðið fékk Ham/Kam í heimsókn í bikarnum í kvöld og komst yfir á 39. mínútu með marki Emils Konradsen Ceide, en gestirnir sneru taflinu við í síðari hálfleik.

Hinn 18 ára gamli David Benjamin, sem kom inn af bekknum hjá Ham/Kam, jafnaði metin á 72. mínútu og tólf mínútum síðar skoraði Viðar Ari sigurmarkið með skalla á fjærstönginni eftir frábæra fyrirgjöf frá Loris Mettler.

Það er því Ham/Kam sem tryggir sér sæti í 16-liða úrslitunum, en Freyr og félagar eru úr leik eftir að hafa verið á góðri siglingu undanfarna mánuði.

Ólafur Guðmundsson hafði betur gegn Júlíusi Mar Júlíussyni þegar Álasund vann 2-0 sigur á Kristiansund. Ólafur var í byrjunarliði Álasunds og Júlíus byrjaði hjá Kristiansund.

Eggert Aron Guðmundsson, Sævar Atli Magnússon og Kristall Máni Ingason komu allir við sögu í 2-0 sigri Brann á Grorud. Kristall og Sævar voru í byrjunarliðinu, en Eggert kom inn af bekknum.

Kristall skoraði fyrra mark Brann á 66. mínútu eftir fyrirgjöf Vetle Dragsnes.

Hinrik Harðarson og Breki Baxter komu báðir inn sem varamenn þegar Egersund marði 1-0 sigur á Bryne. Davíð Snær Jóhannsson var í byrjunarliði Bryne.

Breki Baldursson var þá í byrjunarliði Åsane sem vann sannfærandi 3-0 sigur á Hödd.

Í þýska bikarnum kom Jón Dagur Þorsteinsson inn af bekknum í 2-0 sigri Herthu Berlínar á Jeddeloh, en Hertha tryggði sér þar með sæti í 16-liða úrslitunum.

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Horsens eru hins vegar úr leik í danska bikarnum eftir óvænt 1-0 tap gegn Brabrand eftir framlengingu í 16-liða úrslitunum. Guðlaugur Victor var hvíldur og sat allan leikinn á bekknum.
Freyr og Rosenborg eru úr leik í bikarnum

Freyr og Rosenborg eru úr leik í bikarnum

Canon

Mynd: Rosenborg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.