28.10.26 - 20:59
Brynjar Ingi Erluson
Fylkir staðfestir brotthvarf Heimis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir staðfesti í kvöld að Heimir Guðjónsson hafi látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla. Hann er á leiðinni að taka við ÍA og er búist við að Skagamenn staðfesti ráðninguna á næstu dögum.

TENGT EFNI
ÍA búið að ganga frá ráðningu á Heimi
Heimir tók við Fylki í október á síðasta ári og skrifaði þá undir tveggja ára samning.
Í tilkynningu frá Fylki kemur fram að ekki hafi verið gert ráð fyrir uppsagnarákvæði í samningnum.
Félagið bendir jafnframt á að Heimir hafi verið orðaður við fjölmörg félög í fjölmiðlum og hlaðvörpum undanfarna mánuði. Stjórnarmenn Fylkis töldu því að hagsmunum félagsins væri best borgið með því að slíta samstarfinu.
Heimir er því laus allra mála og hefur, eins og áður hefur komið fram á Fótbolti.net, þegar náð samkomulagi við ÍA. Búist er við að Skagamenn staðfesti ráðninguna innan skamms.
Undir stjórn Heimis vann Fylkir Lengjubikarinn, komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins og alla leið í úrslitaleikinn um sæti í Bestu deild karla, þar sem liðið tapaði 1-0 fyrir Þrótti.
„Við lítum stolt um öxl þegar við horfum til tímabilsins 2026 þó svo að megin markmiðið að tryggja okkur réttinn til að spila í Bestu deild 2027 hafi ekki náðst. Fylkir vann Lengjubikarinn sl. vor, við lékum til undanúrslita í Mjólkurbikarkeppni KSÍ og heilt yfir voru miklar framfarir á liðinu frá fyrra ári. Stuðningurinn við Fylki í úrslitakeppninni í september var framúrskarandi og þar eiga stuðningsmenn Fylkis mikið hrós skilið.
„Í fjölmiðlum og hlaðvörpum hefur nafn Heimis ítrekað verið tengt við önnur félög á undanförnum mánuðum. Eftir rót síðustu vikna er það mat stjórnar Knattspyrnudeildar Fylkis að hagsmunum Fylkis sé best þjónað með slitum á samstarfinu við Heimi Guðjónsson.
„Við þökkum Heimi fyrir hans framlag til Fylkis og óskum honum velfarnaðar.“
„Stjórn deildarinnar og meistaraflokksráð er staðráðið að byggja á þeim góða grunni sem er til staðar hjá Fylki. Leit að nýjum aðalþjálfara karlaliðs Fylkis er hafin,“ segir í tilkynningu Fylkis í kvöld.

Heimild: Heimasíða Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson