28.10.26 - 19:03
Brynjar Ingi Erluson
Evrópubikarinn: Íslendingaliðin í góðri stöðu

Brenna Lovera skoraði tvö fyrir Brann

Mynd: Hrefna Morthens

Brenna Lovera skoraði tvö fyrir Brann

Mynd: Hrefna Morthens

Íslendingaliðin Brann og Hammarby eru komin með annan fótinn í 8-liða úrslit Evrópubikarsins.
Diljá Ýr Zomers og stöllur hennar í Brann unnu öruggan 3-0 sigur á pólska liðinu Czarni Sosnowiec í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum, en leikið var í Noregi.
Diljá var í byrjunarliði Brann og lék nánast allan leikinn, en það var Brenna Lovera, fyrrum leikmaður ÍBV og Selfoss, sem stal senunni með því að skora tvö mörk fyrir norska liðið.
Ída Marín Hermannsdóttir og Guðrún Arnardóttir voru sömuleiðis báðar í byrjunarliði Hammarby sem vann góðan 3-1 útisigur á Myjava frá Slóvakíu.
Ída fór af velli eftir klukkutíma leik, en Guðrún lék allan leikinn í hjarta varnar Hammarby.