Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. nóvember 2020 19:12
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Chelsea og Tottenham: Ndombele bestur
Mynd: Getty Images
Chelsea og Tottenham gerðu markalaust jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og er Sky Sports búið að gefa leikmönnum einkunnir.

Miðjumaðurinn Tanguy Ndombele var maður leiksins hjá Sky Sports með 7 í einkunn. Tíu aðrir leikmenn fengu sömu einkunn, fimm í hvoru liði.

Tammy Abraham, Christian Pulisic og Giovani Lo Celso þóttu verstu menn vallarins og fengu 5 í einkunn.

Tottenham er á toppi deildarinnar með 21 stig eftir 10 umferðir. Chelsea er í þriðja sæti með 19 stig.

Chelsea: Mendy (7), James (6), Thiago Silva (7), Zouma (6), Chilwell (6), Kante (6), Kovacic (6), Mount (7), Ziyech (7), Werner (7), Abraham (5).
Varamenn: Pulisic (5), Giroud (6)

Tottenham: Lloris (7), Aurier (6), Dier (7), Rodon (7), Reguilon (7), Hojbjerg (7), Sissoko (6), Ndombele (7), Son (6), Bergwijn (6), Kane (6).
Varamaður: Lo Celso (5)
Athugasemdir
banner
banner
banner