Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. nóvember 2020 20:51
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Jimenez fluttur á sjúkrahús eftir skallaeinvígi
Mynd: Getty Images
Arsenal og Wolves eiga leik í úrvalsdeildinni þessa stundina en hann fór ekki sérlega vel af stað því leikinn þurfti að stöðva í tíu mínútur strax í upphafi.

Arsenal átti hornspyrnu og fóru David Luiz og Raul Jimenez báðir upp í boltann. Þeir skullu saman og lágu eftir en Jimenez fór verr út úr árekstrinum og var sendur á sjúkrahús.

David Luiz fékk umbúðir utan um hausinn og spilaði út hálfleikinn. Tíu mínútum var bætt við í uppbótartíma vegna áreksturins.

Úlfarnir eru búnir að vera betri í leiknum og eru með forystuna á 67. mínútu, staðan er 1-2.

Jimenez missti meðvitund en líkami hans brást vel við lyfjameðferð. Hann er með meðvitund og úr allri hættu.

Athugasemdir
banner
banner
banner