Fotbolti.net
29.12.17 - 14:57
Magnús Már Einarsson

Arnór Gauti í Breiðablik (Staðfest)

Arnór Gauti Ragnarsson.

Arnór Gauti Ragnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Breiðablik hefur keypt framherjann Arnór Gauta Ragnarsson aftur í sínar raðir frá ÍBV.

Hinn tvítugi Arnór Gauti gekk til liðs við ÍBV fyrir ári síðan en hann varð bikarmeistari með liðinu í sumar.

Arnór Gauti skoraði fimm mörk í 24 deildar og bikarleikjum með ÍBV í ár en hann hefur átt fast sæti í U21 árs landsliði Íslands.

Arnór lék í yngri flokkum Aftureldingar en hann spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki hjá Breiðabliki sumarið 2015. Sumarið 2016 var hann síðan á láni hjá Selfyssingum.
Komnir:
Arnór Gauti Ragnarsson frá ÍBV
Jonathan Hendrickx frá Leixoes

Farnir:
Dino Dolmagic
Ernir Bjarnason í Leikni R.
Kristinn Jónsson í KR
Sólon Breki Leifsson í Vestra

Framherjinn duglegi @arnor_gauti hefur ákveðið að ganga til liðs við Blika á nýjan leik. Hann skipti yfir í ÍBV síðasta sumar og lék þar 24 leiki í deild og bikar og skoraði 5 mörk. Arnór Gauti hefur einnig átt fast sæti í U-21 árs landsliði Íslands að undanförnu. ⚽️💚👏#blikar pic.twitter.com/2xV3GUvtWz

— Blikar.is (@blikar_is) December 29, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.