
Ágúst Karel Magnússon hefur skrifað undir tveggja ára samning um að leika með Þrótti í Reykjavík.
Ágúst er fæddur árið 2000 og kemur frá Ægi Þorlákshöfn. Hann á að baki um 50 leiki í neðri deildum, þar af 21 leik með Ægi síðastliðið sumar þar sem hann skoraði 5 mörk.
Ágúst er fæddur árið 2000 og kemur frá Ægi Þorlákshöfn. Hann á að baki um 50 leiki í neðri deildum, þar af 21 leik með Ægi síðastliðið sumar þar sem hann skoraði 5 mörk.
„Ágúst er kantmaður að upplagi, eldfljótur, beinskeyttur og marksækinn. Ágúst er uppalinn í Víkingi en hefur nú ákveðið að taka slaginn með Þrótti í Lengjudeildinni og verður mikilvæg viðbót í okkar leikmannahóp á komandi sumri. Bjóðum Ágúst Karel velkominn í Þrótt," segir á heimasíðu Þróttar.
Þróttur endaði í öðru sæti 2. deildar á síðasta tímabili og leikur því í Lengjudeildinni á komandi ári.

Athugasemdir