Fotbolti.net
30.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Fowler kominn til Man City. (Staðfest)

Robbie Fowler er orðinn Manchester City leikmaður. Kappinn skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning nú í morgun. Áður hafði hann undirgengist læknisskoðun hjá félaginu. Eins og stendur er hann á sinni fyrstu æfingu hjá félaginu og um helgina verður hann í byrjunarliðinu gegn WBA ásamt Nicolas Anelka í framlínunni. City greiðir 3 milljónir punda fyrir Fowler og svo aðrar 3 þegar hann hefur leikið ákveðinn fjölda leikja með félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.