Sigurður Breki Kárason er efnilegur leikmaður sem vakti athygli síðasta sumar þegar hann lék þrjá leiki með KR í Bestu deildinni. Hann byrjaði óvænt gegn Val síðasta vor og stóð sig mjög vel. Hann er ekki á hávaxnasti á velli en hann lætur það ekki trufla sig. Hann hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í vetur og eru Vesturbæingar spenntir að sjá hann spila í sumar.
Sigurður Breki er miðjumaður sem á að baki ellefu leiki fyrir yngri landsliðin og hefur í þeim skoraði eitt mark. Hann er þessa stundina með U17 landsliðinu á Ítalíu. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Sigurður Breki er miðjumaður sem á að baki ellefu leiki fyrir yngri landsliðin og hefur í þeim skoraði eitt mark. Hann er þessa stundina með U17 landsliðinu á Ítalíu. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Sigurður Breki Kárason
Gælunafn: Er alltaf bara kallaður Siggi en strákarnir í KR kalla mig stundum Siggi-Seven.
Aldur: 16 ára
Hjúskaparstaða: Á lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Janúar 2025 á móti Fjölni í Reykjavíkurmótinu. Ég kom inná í c.a. hálftíma og stóð mig bara vel.
Uppáhalds drykkur: Coca Cola
Uppáhalds matsölustaður: Flatey er mjög gott, fæ mér oftast pizzu þaðan daginn fyrir leik
Uppáhalds tölvuleikur: Spilaði mikið FIFA áður fyrr, ekki mikið í tölvuleikjum í dag.
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Eins og staðan er núna er það Curb Your Enthusiasm
Uppáhalds tónlistarmaður: The Weeknd
Uppáhalds hlaðvarp: Hlusta ekki mikið á hlaðvörp en ætli það sé ekki bara Fm95Blö
Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Sveppi sennilega
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Amma að láta mig vita að afi sæki mig útí KR og skutli mér í skólann á morgun.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: val(i)
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Jónatan Ingi örugglega
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Óskar Hrafn
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Kai Rooney, gæinn var með allt of mikið egó
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Messi er númer 1,2 og 3 en Hazard fær shout líka
Sætasti sigurinn: Sætasti sigurinn var allan daginn þegar við héldum okkur uppi í Bestu deildinni með sigri á Vestra síðasta sumar. Ég var reyndar staddur í útlöndum í landsliðsverkefni en fylgdist spenntur með þaðan.
Svo var líka í leik sem ég spilaði í þegar við unnum úrslitaleikinn á Iber Cup í 3. flokki.
Mestu vonbrigðin: Meiðslin í fyrra gegn Aftureldingu
Uppáhalds lið í enska: Arsenal
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Engan, er mjög ánægður með hópinn.
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Karla: Alexander Rafn Kvenna: Sóley Káradóttir
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Elís Hilaj, leikmaður 2. flokks KR.
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Get ekki valið einhverja eina, margar flottar
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Lionel Messi, engin spurning.
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Sóknarlið má ekki byrja inni í markteig í hornspyrnum.
Uppáhalds staður á Íslandi: Vesturbærinn og þá sérstaklega Meistaravellir og Vesturbæjarlaug
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég var tekinn í glímu uppúr þurru í miðjum leik, frekar skrítið augnablik. Mér fannst þetta samt bara skemmtilegt því við vorum að vinna leikinn 0-3.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Fæ mér alltaf pönnukökur fyrir leiki
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Ekki mikið sko, hef samt gaman af pílunni þegar stórmót eru í gangi
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Hef alltaf verið glataður í ensku
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég mætti með stuttbuxur litlu systur minnar í leik og ég leit út eins og Pickford
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Thierry Henry því hann veit mikið um fótbolta og er skemmtilegur, Messi því það er ekki hægt að horfa framhjá honum og Micah Richards uppá stemninguna.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Halldór Snær því hann er helvíti fyndinn og nær vel til allra
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Eftir að hafa séð danstaktana hans Orra Hrafns í æfingaferðinni væri ég til í að sjá hann í Let’s dance.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Hef skorað á móti Real Madrid
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Það var alveg stórt að fá Arnór Ingva í hópinn og það kom mér á óvart hversu hógvær og næs hann er og svo er hann duglegur að segja manni til þannig að maður getur lært helling af honum
Hverju laugstu síðast: Held það hafi verið þegar ég var að fara í sund og sagðist vera lagður af stað en var það alls ekki.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun er ekkert sérstök
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja Neymar hvað hann var að pæla þegar hann ákvað að fara frá Barcelona.
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Lofum stuði og stemningu, allir að mæta á völlinn!
Athugasemdir

