30.03.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið mætir Úkraínu (14. apríl) og Englandi (18. apríl) á Laugardalsvelli í undankeppni HM. Liðið tapaði gegn Englandi og Spáni í fyrstu tveimur leikjum keppninnar.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, var í viðtali við Fótbolta.net eftir fréttamannafund fyrir leikina. Amanda Andradóttir, sem gekk til liðs við Molde í kringum áramótin, er ekki í hópnum vegna meiðsla ásamt Selmu Sól Magnúsdóttur en hún hefur verið lengi fjarverandi.

TENGT EFNI
Landsliðshópurinn - Linda Líf í fyrsta sinn
„Það er aðeins í Amöndu, aðeins byrjuð í bolta en ekki inn á æfingum. Selma er byrjuð að æfa með liðinu á fullu, nánast farin að gera allt á æfingasvæðinu," sagði Steini.
„Hún er á réttri leið. Þetta lítur vel út í dag miðað við hvernig þetta leit út fyrir sex mánuðum."
Selma Sól er leikmaður Rosenborg í Noregi og var lykilmaður í liðinu þangað til hún meiddist fyrir rúmu ári síðan. Hún er 27 ára gömul og leikur sem miðjumaður. Hún hefur spilað 39 landsleiki og skorað níu mörk.