Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   mán 30. mars 2026 20:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vináttuleikur: Havertz á skotskónum í sigri Þýskalands
Mynd: EPA
Þýskaland 2 - 1 Gana
1-0 Kai Havertz ('45 , víti)
1-1 Issahaku Fatawu ('70 )
2-1 Deniz Undav ('88 )

Þýskaland var með öll völd á vellinum þegar liðið mætti Gana í vináttulandsleik í kvöld.

Það var algjör einstefna í fyrri hálfleik. Florian Wirtz kom boltanum í netið eftir rúmlega hálftíma leik en markið var dæmt af þar sem Nick Woltemade var rangstæður í aðdragandanum.

Þjóðverjar brutu loksins ísinn í uppbótatíma fyrri hálfleiks þegar liðið fékk vítaspyrnu. Kai Havertz steig á punktinn og skoraði.

Deniz Undav, Antonio Rudiger og Lennart Karl komu inn á í hálfleik fyrir Serge Gnabry, Jonathan Tah og Havertz.

Gana náði að jafna metin þegar Abdul Fatawu skoraði en þetta var eina tilraun liðsins sem fór á markið. Undav tryggði Þýskalandi sigurinn eftir undirbúning Leroy Sane sem var nýkominn inn á sem varamaður.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner