Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 30. maí 2020 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu magnað mark Cesinha í Suður-Kóreu
Cesinha.
Cesinha.
Mynd: Getty Images
Daegu og Sangju Sangmu áttust við í úrvalsdeildinni í Suður-Kóreu í gærmorgun.

Deildin í Suður-Kóreu er byrjuð að rúlla á fullu eftir að kórónuveirufaraldurinn hafði frestað upphafinu á mótinu.

Leikurinn í gær endaði með 1-1 jafntefli, en Song Seung-Min jafnaði fyrir Sangju Sangmu eftir að Brasilíumaðurinn Cesinha hafði komið Daegu yfir með mögnuðu marki.

Hægt er að sjá þetta glæsilega mark hjá Cesinha, sem er líklega eitt brasilíska nafn sem til er, í myndbandinu sem er hér að neðan. Alvöru mark.

Daegu 1-0 Sangju Sangmu - Cesinha 51' from r/soccer


Athugasemdir
banner
banner