Fotbolti.net
30.07.12 - 14:40
Magnús Már Einarsson

Hjálmar Þórarinsson í Þrótt (Staðfest)

Hjálmar Þórarinsson í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Framherjinn Hjálmar Þórarinsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Þrótt.

Hjálmar hefur leikið tvo leiki með Berserkjum í þriðju deildinni og skorað eitt mark en hann hefur tekið því rólega í fótboltanum undanfarna mánuði.
Hjálmar lék síðast með Þrótturum í fyrstu deildinni árið 2004 en hann gekk í kjölfarið til liðs við Hearts í Skotlandi.

Þegar Hjálmar kom aftur til Íslands árið 2007 gekk hann síðan í raðir Fram og lék með Safamýrarliðinu þar til í vetur þegar hann ákvað að skipta í Berserki.

Þessi 26 ára gamli leikmaður er kominn með leikheimild með Þrótti og hann gæti spilað með liðinu gegn Stjörnunni í undanúrslitum Borgunarbikarsins á miðvikudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.