Fotbolti.net
30.07.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Chelsea lánar Miazga aftur til Vitesse (Staðfest)

Miazga mun aftur spila með Vitesse.

Miazga mun aftur spila með Vitesse.

Canon

Mynd: Getty Images

Bandaríski varnarmaðurinn Matt Miazaga mun taka annað tímabil með Vitesse Arnheim í Hollandi. Englandsmeistarar Chelsea hafa aftur lánað hann til Hollands fyrir komandi tímabil.

Hinn 22 ára gamli Miazga kom til Chelsea frá New York Red Bulls í janúar 2016, en hann hefur lítið spilað á Englandi síðan þá.

Hann tók aðeins tvo leiki áður en hann var lánaður fyrst til Vitesse.
Chelsea, sem er eins og áður segir Englandsmeistari, hefur lánað leikmenn til Vitesse með reglulegu millibili frá 2010. Leikmenn sem hafa m.a. farið þangað á láni eru Nemanja Matic og Bertrand Traore.

Á síðasta tímabili varð Vitesse í fimmta sæti hollensku úrvalsdeildarinnar auk þess að verða bikarmeistari í fyrsta sinn. Liðið spilar því í Evrópudeildinni á tímabilinu sem er í vændum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.