Fotbolti.net
30.07.17 - 14:54
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Þórður Steinar í Breiðablik (Staðfest)

Þórður Steinar er kominn aftur í Kópavoginn

Þórður Steinar er kominn aftur í Kópavoginn

Canon

Mynd: Breiðablik

Þórður steinar Hreiðarsson er genginn til liðs við Breiðablik en þetta kemur fram á <a href=\"http://www.blikar.is/frettir/thordur_steinar_til_blika\" target=\"_blank\">heimasíðu félagsins.</a>

Þórður er þrítugur varnarmaður með mikla reynslu en hann þekkir vel til hjá Blikum þar sem hann lék með félaginu með góðum árangri árin 2011-2014. Hann lék þá 64 leiki og skoraði 5 mörk.

Fyrr á þessu ári fékk Þórður félagaskipti í systurfélagi Breiðabliks, Augnablik og lék hann fjóra leiki með þeim í sumar en hann er upalinn hjá Val.

Þórður hefur komið víða við á ferli sínum en hann hefur einnig leikið með Þrótti R. og Þór Akureyri sem og með liðum í Sviss og Færeyjum. Þá á Þórður 7 leiki með yngri landsliðum Íslands.

<i>„Það er mikill fengur að Þórði Steinari með nærveru hans í okkar öfluga hópi sem tekið hefur breytingum undanfarna daga. Blikar bjóða hann hjartanlega velkominn í þá spennandi baráttu sem framundan er,\"</i> segir á heimasíðu Breiðabliks.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.