Fotbolti.net
30.07.17 - 18:00
Fótbolti.net

Þrjár í Þrótt (Staðfest)

Þróttarar hafa fengið liðsstyrk

Þróttarar hafa fengið liðsstyrk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Þróttarar hafa fengið liðsstyrk í fyrir toppbaráttu 1.deildar en þrír leikmenn hafa gengið til liðs við liðið á síðustu dögum.
Það eru þær Eva Banton, Eva María Jónsdóttir og María Rós Arngrímsdóttir.

Eva Banton kemur frá Tindastól en hún hefur verið einn besti leikmaður Stólanna það sem af er sumri.

Eva María kemur á láni frá Val en hún var á láni hjá Haukum í byrjun sumars og lék fimm leiki með liðinu í Pepsi-deild og bikar áður en hún sneri aftur á Hlíðarenda.

María Rós skiptir í Þrótt úr HK/Víkingi þar sem hún hefur spilað tvo leiki í sumar.

Framundan er hörð toppbarátta í 1. deildinni en Þróttarar sitja nú í 3. sæti. Fjórum stigum á eftir toppliði Selfoss en eiga tvo leiki til góða.

Núna er í gangi leikur Þróttar og Sindra og nýju leikmennirnir eru allar í leikmannahópi Þróttar. Eva Banton og Eva María í byrjunarliðinu en María Rós á bekknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.