30.07.20 - 21:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Hamrarnir með endurkomusigur

Bojana stýrði Hömrunum til sigurs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bojana stýrði Hömrunum til sigurs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Hamrarnir 2 - 1 Fjarðab/Höttur/Leiknir</b>
0-1 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('24)
1-1 Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('40)
2-1 Hafrún Mist Guðmundsdóttir ('57)
0-1 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('24)
1-1 Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('40)
2-1 Hafrún Mist Guðmundsdóttir ('57)
Hamrarnir unnu endurkomusigur gegn sameiginlegu liði Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis þegar liðin áttust við í 2. deild kvenna í kvöld.
Freyja Karín Þorvarðardóttir, sem hefur verið frábær í upphafi móts og raðað inn mörkunum, negldi boltanum í netið og kom gestunum yfir.
Hamrarnir svöruðu því vel og jafnaði Ísfold Marý Sigtryggsdóttir fyrir þær. Hafrún Mist Guðmundsdóttir kom Hömrunum svo yfir snemma í seinni hálfleiknum og þar við sat.
Lokatölur 2-1 og fara Hamrarnir upp í fjórða sæti með tíu stig. Fjarðab/Höttur/Leiknir er í þriðja sæti með 12 stig.