Fotbolti.net
30.07.21 - 20:10
Victor Pálsson

Man City bauð 100 milljónir í Grealish

Man City bauð 100 milljónir í Grealish
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City er búið að leggja fram 100 milljóna punda tilboð í miðjumanninn Jack Grealish.
Það er Sky Sports sem greinir frá þessu í kvöld en Man City hefur mikinn áhuga á að fá þennan leikmann Aston Villa.

Samkvæmt Sky hefur Villa enn ekki svarað þessu tilboði Man City og vildi enginn tjá sig er Sky hafði samband.

Grealish er gríðarlega eftirsóttur leikmaður en hann spilaði með enska landsliðinu á EM í sumar og er fyrirliði Villa.

Fyrr í dag var greint frá því að tilboð væri á borði Villa en samkvæmt Sky hljóðar það upp á 100 milljónir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.