Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 30. júlí 2021 12:30
Elvar Geir Magnússon
Tilboð frá Man City í Grealish á borði Aston Villa
Mynd: Getty Images
Manchester City hefur verið í viðræðum við Aston Villa um Jack Grealish síðan í gær. Viðræður eru enn í gangi en City hefur lagt fram tilboð í leikmanninn á borð Aston Villa.

Þetta fullyrðir íþróttafréttamaðurinn áreiðanlegi Fabrizio Romano.

Grealish hefur verið í sumarfríi síðan hann lék með enska landsliðinu á EM alls staðar. Aston Villa reynir allt til að reyna að halda í fyrirliða sinn og félagið hefur boðið honum nýjan samning.

Pep Guardiola er sagður leggja mikinn þrýsting á Manchester City að landa Grealish fyrir komandi tímabil.



Athugasemdir
banner
banner
banner