30.08.12 - 14:21
Magnús Már Einarsson
Jordan Rhodes til Blackburn á átta milljónir punda (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur keypt framherjann Jordan Rhodes frá Huddersfield en kaupverðið gæti orðið allt að átta milljónir punda.
Rhodes hefur verið á óskalista Blackburn í allt sumar og félagið hefur nú loksins gengið frá kaupunum.

Rhodes hefur raðað inn mörkum með Huddersfield síðan hann kom til félagsins frá Ipswich í júlí 2009.
Þessi 22 ára gamli Skoti skoraði samtals 87 mörk í 148 leikjum með Huddersfield en hann skoraði 36 mörk í ensku fyrstu deildinni á síðasta tímabili.
Rhodes gæti leikið sinn fyrsta leik með Blackburn þegar liðið heimsækir Leeds í Championship deildinni um helgina.

Heimild: Sky