30.08.12 - 20:15
Sebastían Sævarsson Meyer
Andy Carroll lánaður til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Andy Carroll er genginn til liðs við West Ham á láni út tímabilið frá Liverpool, en þetta var staðfest nú í kvöld.
West Ham stóð í ströngu að semja við Liverpool í allt sumar og hafa félagaskiptin loksins gengið í gegn.

Liverpool keypti leikmanninn á síðasta ári fyrir 35 milljónir punda en sá hefur ekki staðist væntingar og var ekki inn í myndinni hjá Brendan Rodgers, knattspyrnustjóra.
West Ham hefur nú tryggt sér þjónustu hans út tímabilið en félagið á möguleika á að kaupa leikmanninn endanlega fyrir ákveðna upphæð næsta sumar.
Carroll var í skýjunum eftir félagaskiptin og er spenntur að fá að vinna aftur með Sam Allardyce, knattspyrnustjóra West Ham, en Carroll lék áður undir hans stjórn hjá Newcastle.
,,Það er frábært að vera hér hjá West Ham og að allt sé frágengið. Nú get ég ekki beðið eftir að byrja,\" sagði Carroll.
,,Ég vil spila leiki og augljóslega vona ég að skora einhver mörk. Ég þekki stjórann vel og einhverja leikmenn, svo það er gott fyrir mig að koma á stað þar sem ég þekki fólkið.\"
,,Ég vona að ég muni skora mikið af mörkum og skapa nokkur færi. Ég þekki Sam síðan úr Newcastle sem hafði mikið að segja. Það var frábært að vinna með honum hjá Newcastle svo ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um.\"