30.08.12 - 22:21
Sebastían Sævarsson Meyer
Granero til QPR (Staðfest)

Esteban Granero.

Mynd: Getty Images

Esteban Granero.

Mynd: Getty Images
QPR hefur staðfest kaupin á miðjumanninum Esteban Granero frá Real Madrid og skrifaði leikmaðurinn undir fjögurra ára samning við enska úrvaldeildarliðið eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Félögin komust að samkomulagi um kaupverð í dag og talið er að QPR greiði fimm milljónir punda fyrir leikmanninn.

Granero átti ekki fast sæti í stjörnuprýddu liði Real Madrid og fékk hann því leyfi til að yfirgefa félagið þar sem hann ólst upp en er nú ánægður að vera kominn í ensku höfuðborgina.
,,Ég er mjög ánægður að vera hér. Ég elska ástríðu enskra stuðningsmanna og stuðningsmenn QPR eru meðal þeirra bestu af því sem ég veit,\" sagði Spánverjinn eftir undirskriftina.
,,Ég held að QPR muni halda áfram að vaxa og ég vil vera hluti af bjartri framtíð. Ég er hæstánægður að fá að vera með í þessum spennandi kafla félagsins, QPR getur orðið eitt besta lið Englands.\"
Granero er tíundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við QPR í sumar.