Fotbolti.net
30.09.18 - 12:19
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Beppe Marotta yfirgefur Juventus (Staðfest)

Beppe Marotta yfirgefur Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Beppe Marotta, framkvæmdastjóri Juventus, er búinn að staðfesta að hann mun yfirgefa félagið 25. október. Þetta staðfesti hann eftir 3-1 sigur Juve gegn Napoli í gær.
Búist var við að hann ætlaði að berjast um forsetasæti ítalska knattspyrnusambandsins en hann segir svo ekki vera.

„Þetta hafa verið merkileg átta ár og mun Juventus ávalt eiga sérstakan stað í hjartanu mínu. Ég vildi tilkynna þetta sjálfur því nafn mitt mun ekki vera á nýja stjórnarmannalistanum sem verður gefinn út á mánudaginn," sagði Marotta við Sky Sport Italia.

„Eigendur félagsins hafa ákveðið að breyta um stefnu og mun ég því ekki vera framkvæmdastjóri eftir 25. október. Ég mun halda áfram störfum mínum sem yfirmaður íþróttamála en það er aðeins tímabundið."

Juve vann deildina sjö sinnum með Marotta sem framkvæmdastjóra, bikarinn fjórum sinnum, Ofurbikarinn þrisvar og komst tvisvar sinnum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Þessi tilkynning kom fjölmiðlum á Ítalíu að óvörum, en það eru gríðarlega mörg félög sem hafa þegar verið orðuð við Marotta. Þar á meðal eru Napoli, Roma, Manchester United og Barcelona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.