30.09.18 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nenad Zivanovic tekur við Ægi (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Ægir, sem féll úr 3. deild í sumar, hefur ráðið þjálfara fyrir næsta sumar sem á að koma liðinu beint aftur upp. Þjálfarinn heitir Nenand Zivanovic og ætti að vera fótboltaáhugamönnum á Íslandi góðkunnur.
Zivanovic skrifar undir tveggja ára samning við Ægi.
Nenad er frá Serbíu og er fæddur 1976 og hefur átt farsælan feril sem knattspyrnumaður í heimalandinu, í Færeyjum og ekki síst hér á Íslandi. Margir kannast við hann síðan hann spilaði í efstu deild með Breiðabliki. Hann var þar árin 2006-2008 en spilaði síðar með Þór og Fjarðabyggð til ársins 2013.
Hann hefur líka sinnt yngri flokka þjálfun á Íslandi og var spilandi aðstoðarþjálfari KF árið 2013. Hann fór aftur til Serbíu og gerðist aðalþjálfari liða í 2.deildinni þar í landi á árunum 2014 til 2016. Árið 2017 tók hann við þjálfarastarfinu hjá Hetti í 2. deild en lauk störfum þar nýlega.
„Nenad hefur UEFA "A" þjálfaragráðu og býr að góðri reynslu sem leikmaður og þjálfari sem ætti að nýtast okkar liði vel í verkefnunum framundan. Markmiðið er að búa til öflugt lið og snúa okkar gengi til betri vegar á næstu tímabilum," segir í tilkynningu frá Ægi.
„Félagið býður Nenad hjartanlega velkomin til starfa sem þjálfara meistaraflokks karla og hlakkar til að starfa með honum við að efla meistaraflokk Ægis á næstu árum."