Fotbolti.net
21.11.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Nafnarnir jákvæðir eftir fimm marka slag

Nafnarnir jákvæðir eftir fimm marka slag
Canon

Mynd: EPA

Nafnarnir Frank Lampard og Thomas Frank voru á hliðarlínunni þegar Coventry City tók á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli
TENGT EFNI

England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli

Úr var hraður, opinn og skemmtilegur leikur þar sem liðin skiptust á að skora, en að lokum höfðu heimamenn í Coventry betur þökk sé sjálfsmarki á 85. mínútu.

„Þetta var erfiður leikur, við þurftum að hafa fyrir þessu en við erum svo ánægðir með stigin. Við mættum sterkum andstæðingum sem voru vel stemmdir með nýjan þjálfara og spiluðu vel. Þetta var jafn leikur á marga vegu og við erum virkilega ánægðir með sigurinn. Strákarnir mættu til leiks með rétt hugarfar og þeir sem komu inn af bekknum voru frábærir," sagði Lampard, en nýliðar Coventry eru með 12 stig eftir 11 fyrstu umferðirnar á úrvalsdeildartímabilinu.

„Við höfum ekki keppt í þessari deild í 25 ár og ég er svo stoltur af því hversu fljótir við höfum verið að taka mikilvæg skref til að vera samkeppnishæfir."

Thomas Frank er nýtekinn við hjá Crystal Palace eftir brottrekstur Pierre Sage.

„Þetta var augljóslega úrvalsdeildarleikur, hátt tempó, mikil ákefð og almennt brjálæði. Þetta eru ekki úrslitin sem við vildum en það er ýmislegt jákvætt sem við getum tekið með okkur úr þessum leik. Strákarnir lögðu sig alla fram," sagði Frank, en Palace fékk mikið af góðum færum í opnum leik.

„Ég er ánægður með að við skoruðum tvö góð mörk og sköpuðum mikið af góðum færum. Við vorum aðeins of opnir í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik stjórnuðum við leiknum betur. Coventry skapaði ekki neitt eftir leikhléð nema markið sem þeir skoruðu - mark sem við gátum komið í veg fyrir.

„Mér fannst við vera sterkara liðið í síðari hálfleik, við fengum bestu færin en gátum ekki skorað."


Palace er á botni deildarinnar með 7 stig.
Nafnarnir jákvæðir eftir fimm marka slag
Canon

Mynd: Twitter

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.