Fotbolti.net
22.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Erfiður grannaslagur fyrir ríkjandi meistara

Ítalía í dag - Erfiður grannaslagur fyrir ríkjandi meistara
Canon

Mynd: EPA

Það er nóg um að vera í ítalska boltanum í dag og hefst fjörið í hádeginu þegar Juventus tekur á móti Þóri Jóhanni Helgasyni og félögum í liði Venezia.
Juve hefur ekki farið sérlega vel af stað en liðið er í efri hluta deildarinnar með 18 stig eftir 11 umferðir. Til samanburðar er Venezia í fallsæti með 6 stig.

Bologna spilar svo við Udinese í dag á sama tíma og Mikael Egill Ellertsson og félagar í liði Genoa heimsækja Sassuolo.

Lærlingar í sterku AC Milan liði Rúben Amorim taka á móti spútnik nýliðum tímabilsins frá Frosinone áður en Ítalíumeistarar Inter heimsækja Atalanta í nágrannaslag í kvöldleiknum.

Lautaro Martínez, argentínski fyrirliði Inter, er búinn að jafna sig af meiðslum en verður líklegast ekki í byrjunarliðinu. Búast má við að markavélin Nikola Krstovic byrji á sínum stað í fremstu víglínu Atalanta en hann hefur verið funheitur á upphafi tímabils.

Leikir dagsins
11:30 Juventus - Venezia
14:00 Bologna - Udinese
14:00 Sassuolo - Genoa
17:00 Milan - Frosinone
19:45 Atalanta - Inter
Ítalía í dag - Erfiður grannaslagur fyrir ríkjandi meistara
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter11+1528
4Como12+1026
5Milan11+1024
6Frosinone11+920
7Napoli12+518
8Juventus11+318
9Bologna11+217
10Cagliari12-716
11Torino12-314
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce12-1310
15Fiorentina11-89
16Parma12-128
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.