Fotbolti.net
30.09.26 - 20:09
Ívan Guðjón Baldursson

Sagði ekkert vandamál áður en Ronaldo yfirgaf hópinn

Sagði ekkert vandamál áður en Ronaldo yfirgaf hópinn
Canon

Mynd: EPA

Jorge Jesus landsliðsþjálfari Portúgal tjáði sig á fréttamannafundi í dag og ákvað goðsögnin Cristiano Ronaldo að yfirgefa landsliðsbúðirnar í kjölfarið, eftir samtal við forseta portúgalska fótboltasambandsins.
Krísufundur með Ronaldo
TENGT EFNI

Krísufundur með Ronaldo

Jesus var spurður út í meintar deilur á milli sín og Ronaldo sem virtist pirraður eftir sigur Portúgal á útivelli gegn Noregi í Þjóðadeildinni á dögunum. Ronaldo sat allan tímann á bekknum án þess að koma við sögu, hann hitaði upp í 20 til 30 mínútur og fékk svo ekki að taka þátt. Þetta er eitthvað sem er nýtt fyrir Ronaldo á hans ótrúlega fótboltaferli og rauk stórstjarnan beint inn í klefa eftir lokaflautið án þess að kveðja stuðningsmenn.

Portúgalskir og spænskir fjölmiðlar fjölluðu mikið um þetta mál og sögðu að Ronaldo hafi neitað að æfa með portúgalska landsliðinu í gær en Jesus segir ekkert vera til í þeim sögusögnum.

„Það er ekkert vandamál. Cristiano sagði við mig að ég fengi að ráða. Hann sagði: 'Ef þú vilt að ég sitji á bekknum, þá geri ég það. Ef þú vilt að ég sé uppi í stúku, þá verð ég þar.'" sagði Jesus við fréttamenn fyrir spennandi landsleik gegn Danmörku sem fer fram annað kvöld.

Málpípa Ronaldo talar um brotin loforð - „Þetta lítur ekki vel út“
TENGT EFNI

Málpípa Ronaldo talar um brotin loforð - „Þetta lítur ekki vel út“



„Það var ekkert vandamál eftir leikinn gegn Noregi. Ég skil leikmenn sem sitja á bekknum og verða pirraðir eftir að þeir eyða 20 eða 30 mínútum í að hita upp án þess að fá að koma inná. Það finnst engum það vera gaman. Ég tók ákvörðun um að geyma hann á bekknum og það ætti ekki að vera neitt vandamál.

„Það er ekki rétt að Ronaldo neitaði að æfa, hann var að gera sérhæfðar styrktaræfingar og var þess vegna ekki að æfa með restinni af hópnum."


Goncalo Ramos var í byrjunarliðinu gegn Noregi og skoraði sigurmarkið. Jesus sagði á fréttamannafundinum að Ramos myndi líka byrja gegn Dönum.

„Ef ég þarf Ronaldo þá mun hann koma inn af bekknum. Ef ég þarf ekki á honum að halda, þá kemur hann ekki inn af bekknum."
Sagði ekkert vandamál áður en Ronaldo yfirgaf hópinn
Canon

Mynd: EPA

Sagði ekkert vandamál áður en Ronaldo yfirgaf hópinn
Canon

Mynd: EPA

Sagði ekkert vandamál áður en Ronaldo yfirgaf hópinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.