30.10.12 - 21:00
Elvar Geir Magnússon
Damir Muminovic í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Damir í upphitun með Leikni.

Mynd: Leiknir - Brandur

Damir í upphitun með Leikni.

Mynd: Leiknir - Brandur
Hinn fjölhæfi Damir Muminovic er genginn í raðir Víkings í Ólafsvík en hann skrifaði undir samning við félagið um kvöldmatarleytið.
Damir er uppalinn HK-ingur en lék með Leikni í 1. deildinni á liðnu tímabili. Hann er varnarsinnaður leikmaður sem getur leikið sem miðvörður, bakvörður og djúpur miðjumaður.

Víkingur Ólafsvík komst upp í Pepsi-deildina í sumar.
„Liðið sýndi mér áhuga í fyrra og hitteðfyrra og nú ákvað ég að kýla á þetta. Þetta verður erfitt en skemmtilegt tímabil sem er framundan,\" sagði Damir við Fótbolta.net en hann mun flytjast til Ólafsvíkur í febrúar.
Hann er ánægður með dvöl sína hjá Leikni. „Leiknir er frábær klúbbur og þar var gott að vera.\"
Damir er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Ólafsvíkinga síðan tímabilinu lauk. Hinn er sóknarmaðurinn Eyþór Helgi Birgisson sem kom frá ÍBV.
Víkingur hefur misst einn sinn allra öflugasta leikmann, Edin Beslija, sem gekk í raðir Þórs og þá er óvissa varðandi nokkra leikmenn.