Það er búið að draga í þriðju umferð enska bikarsins en drátturinn fór fram nú í kvöld.
Margar áhugaverðar viðureignir verða í boði fyrir knattspyrnuaðdáendur en leikið er 9. og 10. janúar næstkomandi.
Lið Marine í áttundu efstu deild Englands fær heldur betur erfitt verkefni og spilar við úrvalsdeildarlið Tottenham.
Marine spilar á Rossett Park en þar komast aðeins 389 gestir í sæti og óhætt að segja að það sé annað en Tottenham hefur vanist.
Liverpool fær tækifæri til að hefna sin á Aston Villa en leik liðanna í deild fyrr á tímabilinu lauk með 7-2 sigri þess síðarnefnda.
Arsenal fær einnig úrvalsdeildarslag en liðið spilar við Newcastle á heimavelli sínum Emirates.
Hér má sjá dráttinn í heild sinni.
Þriðja umferð enska bikarsins:
Huddersfield vs Plymouth Argyle
Southampton vs Shrewsbury Town
Chorley vs Derby County
Marine vs Tottenham
Wolves vs Crystal Palace
Stockport County vs West Ham
Oldham Athletic vs Bournemouth
Manchester United vs Watford
Stevenage vs Swansea City
Everton vs Rotherham United
Nottingham Forest vs Cardiff
Arsenal vs Newcastle
Barnsley vs Tranmere Rovers
Bristol Rovers vs Sheffield United
Canvey Island eða Boreham Wood vs Millwall
Blackburn Rovers vs Doncaster Rovers
Stoke City vs Leicester
Wycombe Wanderers vs Preston
Crawley Town vs Leeds United
Burnley vs MK Dons
Bristol City vs Portsmouth
QPR vs Fulham
Aston Villa vs Liverpool
Brentford vs Middlesbrough
Manchester City vs Birmingham City
Luton Town vs Reading
Chelsea vs Morecambe
Exeter City vs Sheffield Wednesday
Norwich City vs Coventry City
Blackpool vs West Brom
Newport County vs Brighton
Cheltenham Town vs Mansfield Town
Athugasemdir