Ólíklegt er talið að franski sóknarmaðurinn Anthony Martial geti verið með Manchester United gegn PSG í Meistaradeildinni á miðvikudag.
Martial ferðaðist með í leikinn gegn Southampton í gær en vegna veikinda var hann eftir á hótelinu á meðan United vann 3-2 endurkomusigur.
Martial ferðaðist með í leikinn gegn Southampton í gær en vegna veikinda var hann eftir á hótelinu á meðan United vann 3-2 endurkomusigur.
Frakkinn mætti á æfingu á Carrington æfingasvæðinu í dag en yfirgaf æfinguna eftir aðeins ellefu mínútur. Samkvæmt enskum fjölmiðlum sendu læknar United hann heim.
Martial hefur ekki skorað úrvalsdeildarmark á þessu tímabili en verið í betri gír í Meistaradeildinni þar sem hann er með tvö mörk og tvær stoðsendingar í fjórum leikjum.
Edinson Cavani gæti byrjað fyrir United gegn sínu fyrrum félagi.
Van de Beek og David de Gea eru tæpir fyrir leikinn. Spænski markvörðurinn meiddist á hné gegn Southampton og mun fara í nánari skoðun í dag.
Athugasemdir